Nú eru Vestfirðirnir komnir í tísku. Lonely Planet var að velja þá sem einn af girnilegustu áfangastöðum í heimi, árið 2022. Árið 2020 varð til svokölluð Vestfjarðaleið í kjölfar þess að Dýrafjarðargöng voru opnuð. Þetta er skilgreind ferðamannaleið sem ferðaþjónustan á Vestfjörðum hefur unnið að með Vestfjarðastofu í fararbroddi. Það er ekki síst hjólreiðaferðamennskan sem er í sviðsljósinu.
Innviðarráðherra skipaði starfshóp til að kortleggja stöðu smáfarartækja í umferðinni og vinna tillögur að úrbótum, m.a. til að tryggja umferðaröryggi og bæta innviði fyrir nýjan ferðamáta. Starfshópurinn á að skila af sér tillögum fyrir 1. júní n.k. Smáfarartæki eru nú einkum rafmagnshlaupahjól sem líka eru kallaðar rafskútur. Það er er stefnt að því að sumarið 2022 liggi fyrir tillögur að breytingum á regluverki smáfarartækja, ásamt áherslum og aðgerðum um örugga notkun, búnað og umhverfi... Читать дальше...
Velo City ráðstefnan 2021 fór fram í Lissabon í september s.l. Höfundur fór á ráðstefnuna ásamt tveimur öðrum íslendingum, Sesselju Traustadóttir frá Hjólafærni og Katrínu Halldórsdóttur frá Vegagerðinni. Ráðstefnan er án efa stærsta ráðstefnan um hjólreiðar í heiminum og er skipulögð af Evrópusamtökum hjólreiðamanna ECF, sem Landssamtök hjólreiðamanna eiga aðild að. Hún er haldin í mismunandi borgum og verður næst 14.-17. júní í Ljubljana í Slóveníu[1]. Á ráðstefnunni er fjallað um allt sem... Читать дальше...
Góð hjólastæði fyrir gesti, gott aðgengi fyrir starfsmenn, viðgerðaraðstaða, samgöngusamningar og stefnumótun eru á meðal þess sem gefur stig í Hjólavottun vinnustaða; vottun sem varð til upp úr samfélagsverkefninu Hjólum.is þar sem grasrót, stofnanir og fyrirtæki fóru samhent í aðgerðir til að efla hjólreiðamenningu á Íslandi árið 2015.