Fjallahjólaklúbburinn var stofnaður fyrir 30 árum og af því tilefni langar okkur að fagna með smá grillveislu 27. júlí. Hún verður haldin í Heiðmörk, í skála Norðmanna. Hægt að gista í skálanum ef gleðin teygist fram eftir kvöldi. Við þurfum að rukka kr 1000 kall svo við getum skipulagt herlegheitin, en í boðinu verður grillveisla, gos, rautt, hvítt og bjór. Og að sjálfsögðu afmælisterta og kaffisopi. 250 krónur fyrir börn. Vinsamlega leggið inn á reikninginn okkar sem fyrst og sendið póst á hjolahronn@gmail.com til að staðfesta þátttöku. 0515-26-600691 ktal: 6006911399