Fjallahjólaklúbburinn á grind fyrir bíl sem tekur 4 reiðhjól. Hún kom í góðar þarfir þegar við ákváðum að bjóða upp á dagsferð að gosinu. Þegar ferðin var skipulögð, var Suðurstrandarvegur lokaður og planið var að hjóla frá Grindavík, upp og niður Ísólfsskálabrekku og fara svo malarslóða inn að Nátthaga og ganga þaðan upp að Geldingadölum. En þá var Suðurstrandavegur opnaður og við það styttist hjólaleiðin all verulega. Til að við fengjum eitthvað hjólerí út úr deginum, þá kannaði ég slóða... Читать дальше...
Aðeins ein vika leið frá því ég kláraði 11.000 kílómetra ferð þvert yfir Bandaríkin og þar til ég var staddur á Keflavíkurflugvelli að setja saman nýtt hjól og að hefja aðra ferð. Nokkrum mánuðum áður, í lok mars 2020, hafði ég gert hlé á stóru hjólaferðinni minni um Bandaríkin til að leita skjóls fyrir heimsfaraldrinum heima hjá foreldrum mínum í Texas. Nú finnst manni þetta hafa gerst fyrir löngu síðan.